Partýteiti
Eurovision-teitið heppnaðist með eindæmum vel. Ekki okkur að þakka að vísu þegar kemur að undirbúningi og eftirfylgni. Heiða á algjörlega skilið allan heiður sem þessu fylgir.
Ég hugsa að næsta teiti sem bekkirnir halda saman verði að fara á okkar skipulagsreikning.. hmm. Við höldum eitthvað skemmtilegt partý þegar við hittumst aftur eftir sumarfrí eða eitthvað.
Svo væri gaman en aðrir en ég og Erna blogguðum eitthvað hérna (já ég veit að Salka bloggaði einu sinni).
Roger that?
yfir og út
Katrín Magnúsdóttir
Útskriftarferð nálgast
Ég ætla að útskýra á þessari sívinsælu síðu nokkur atriði sem tengjast útskriftarferðinni.
Í fyrsta lagi ætlar Landsbankinn að bjóða þeim sem kaupa sér svarta-kortið 20.000kr. í formi inneignar á kortið ef borgað er með því. Með þessu kreditkorti fylgja einnig ýmsar tryggingar svo þetta er bara frábært. Þið getið valið um nokkrar gerðir korta. Þetta verður betur kynnt á fimmtudaginn í næstu viku (eftir menningarferð) og þá getið þið spurt eins og ykkur lystir.
Ég vil minna ykkur á að borga staðfestingargjaldið sem er 14.000kr. í síðasta lagi 2.maí - það er mikilvægt að þetta sé gert á réttum tíma svo engin vandræði verði og allir komist með. Hringja skal í síma 595-1000. Ef einhver vandræði fylgja þessu eða að þið skiljið ekki hvað er átt við, þá endilega að hafa samband við mig eða Ernu.
Við í þriðjubekkjaráði erum orðin frekar stressuð vegna þess hve knappur tíminn er. Áframhaldandi fjáröflun verður því í fullum styrk.
Ég ætla að setja fjáröflunaráætlunina hér inn:
Harðfiskurinn er í gangi núna og þið eruð svo heppin að vera þau fyrstu sem fáið hann. Þetta ætti að vera komið að mestu núna en ennþá eru nokkrir sem eiga eftir að bæði ná í og borga sinn skammt.
Erla ætlar að skoða þetta með lakkrísinn. Við munum ábyggilega skipta við Ásbyrgi en þetta yrði þá samskonar lakkrís og var verið að selja hérna í fyrra - geri ég ráð fyrir. Verðið er enn óljóst en án þess að lofa neinu þá held ég að allir geti valið hvort og hve mikið þeir fá af lakkrísnum en ég hvet auðvitað alla til að taka þátt. Sama fyrirkomulag og á klósettpappír og harðfisk.
Talandi um klósettpappír þá munum við panta hann á næstunni (ekki strax - lakkrís fyrst). Eins og með harðfiskinn þá verður skylda að taka þrjár pakkningar svo þið getið farið að safna að ykkur kaupendum NÚNA.
Að lokum er álfasala en það vill svo óheppilega til að hún lendir á prófahelgi/viku. Ég þarf að athuga nákvæma dagsetningu betur en þetta ætti samt ekki að verða of mikil vinna. Við skipuleggjum tíma hvers og eins þannig að hann sé sem heppilegastu og ef allir taka þátt ætti hver og einn ekki að þurfa að standa og selja í meira en 2-3 tíma (MAX). Ég skal reyna að koma því í gegn að punktarnir verði a.m.k. þrír fyrir þetta (á eftir að sjá hvernig þetta spilast út) þá aðallega vegna prófanna.
Ef þetta gengur eins og við höfum gert ráð fyrir ættum við að skjóta fyrrverandi nefnd ref fyrir rass með tæpum 7 milljónum í gróða!! ÚJEE
Ég þarf svo að finna tíma með ykkur einhvern tíman til að fara yfir punktastöðu - ekki vil ég svíkja neinn né vera svikin.
vonandi er þetta skýrt og greinilegt og ef þið hafði einhverjar spurningar eða tillögur að fjáröflun þá endilega að láta vita.
Kveðja,
Katrín Magnúsdóttir
Formaður 3.bekkjaráðs
Myndablogg
Var búin að lofa að koma með eina myndafærslu .. svo hér eru myndir af öllum í bekknum sem ég laumaðist til að taka af þeim í ýmsum athöfnum;) Sorry krakkar.. :/
Fyrst er það hann Anton nýkominn frá Panama:
Arna er alveg með tímann á hreinu:
E-ð hefur Eik breyst: 
Ákvað að setja líka mynd af mér fyrst ég er svona vond við ykkur: 
Hér er Guðrún í andlegri íhugun: 
Janis á leynilegri samkomu: 
Júlía þegar það er fullt tungli: 
Katrín þegar enginn sér til: 
Lára á Tomb Raider samkomu: 
Linda tók að sér vandasamt hlutverk, og var jólatréð á Seyðisfirði um jólin:
Oddný á sér sérkennilegt áhugamál:
Petra í heimalandi, komin úr mannsbúningnum:
Orri heldur hér á Sölku:
Sigrún að dæla bensíni í Orkunni niðri á Eyri í vetur: 
Silja missti sig á ættarmóti í sumar: 
Hér er Védís, en hún er í leik með Gústa: 
Nú ættum við að vita akkuru hann er alltaf svona ríkur, Villi situr fyrir:
Þorbjörg ásamt öðrum í bekknum, nýkomin úr ræktinni:
Jæja, nú loksins sjáum við hvort annað í réttu ljósi elskurnar.. og vonandi verðum við nánari við þetta... e-ð hef ég líka á tilfinningunni að Salka eigi eftir að reyna duglega við Sigrúnu á komandi dögum;)
Takk fyrir mig og góða helgi..
Plís ekki vera reið:/
-Erna
videókvöld frh.
ég vill hafa video kvöld núna strax þþar sem ég er í fríi í vinnunni núna næstu 4 kvöldin...
spurning að fara og fá pízzuhlaðborð fyrst? ég veit þetta er stuttur fyrirvari fékk bara skyndilega hugdettu! :D (sjáiði hvað ég er klár í íslensku?!?)
en endilega ákveða sig sem fyrst :D
Kv. Salka
PS hvar viljið þið hafa það?
videokvöld
ég mæli klárlega með því. verðum að finna okkur gott kvöld í þetta? hverjir eru game?
Shrove Tuesday

að sjálfsögðu verða pönnukökurnar sem ég baka miklu flottari og betri en þessar sem sjást hérna í myndinni fyrir ofan....þeir sem vilja mega líka koma með myndavél og við getum tekið myndir af pönnukökunum sem ég baka og notað þær tils að auglýsa næsta pönnukökudag! :D plús það getum við tekið myndir af bekknum saman tils að setja hérna inn á síðuna :D
En líka hvað eigum við að vera á miðvikudaginn?!?!?! mér lýst ekkert á þetta hjá okkur krakkar...við erum ekki búin að velja neitt og ég vill fá pizzuhlaðborð!!!!!!!
sjáumst hress og kát á morgun! :D
Salka
Afmælisbarn
Innilega til hamingju með daginn skvísa, farðu vel með þig og láttu alla stjana við þig í dag.

Ástarkveðjur
þinn 3.B.
...
ég vill bara byrja þetta blogg með því að segja Katrínu hversu mikið ég samhryggist þér. Ég skil svo vel hvað þú ert að ganga í gegnum, og ég held að það er flestir sem hafa lent í þessu. Að missa einhvern sem manni þykir vænt um er það erfiðasta sem ég veit um. Eins og þið flest vitið þá missti ég vinkonu mína á sama tíma í fyrra, á föstudaginn 19. janúar þá var ár síðan að hún lést. Þetta var mesta shock sem ég hef fengið, það var líka mjög erfitt að fatta að hún væri farin, bara svona allt í einu, að hún kæmi aldrei aftur. Katrín, þú ert svo heppin að hafa svo marga sem þykja svo vænt um þig og eru til staðar ef þú þarft þau.
En annars hvað segja allir gott? líður ykkur ekki vel að vera búin í prófum? þetta er svo ljúft! núna liggur leiðin mín í sturtu, síðan að pakka og síðan verður flogið til RVK seinna í dag þar sem ég get farið og hitt vinkonu mína smá síðan þarf ég að vakna mjööög snemma, klukkan 4, tils að fara út á flugvöll og fljuga til Englands klukkan 7...ég er mjög spennt...get ekki beðið tils að hitta allar vinkonur mínar aftur! en hvað ætla allir að gera í vetrarfríinu? eitthvað sérstakt?
En ég held að við ættum að halda bekkjar hitting eftir fríið! hvað finnst ykkur?
en ég er farin við heyrumst! :D
Æði, sæði, kjarnafæði!
En prófin fara að byrja, hvernig leggjast þau í ykkur? Kvíðin? Haldiði að þið svífið í gegn? Ég verð nú að segja það að ég er soldið stressuð.. er ekki alveg að fíla þessi próf!
One tree hill og Heroes eru í kveld svo kveldið mitt verður ekki alveg helgað lærdómi. ;)
En mér finnst að við ættum að verða duglegri að gera e-ð saman á næstu önn. Eins og halda bekkjarpartý, fara á kaffihús, í bíó, á skauta, í bað saman (smá Frikki hérna ha ha) eða bara e-ð... við vorum ekki alveg nógu dugleg þessa önnina.. eða ætti ég frekar að segja, við vorum ekkert dugleg! Endilega komiði með hugmyndir;)
Lærdómurinn kallar OF hátt á mig. :/
-Erna
ójá áramót
og svo vil ég mæla með að þú komir á eyrina góðu um áramótin og verðir með okkur stelpugreiunum...allavega mér:) hér verður klárlega stuð:) þannað þú leggst í bleyti og veltir þessu fyrir þér;) heyrumst.
þessi færsla var semsagt ætluð láru...accuru sendi ég þér ekki bara sms? geri það á morgun;)
SiggaRúna